Norðmenn sækja ekki um ESB-aðild 20. október 2005 00:01
Nýja vinstristjórnin í Noregi mun ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu á þessu nýhafna kjörtímabili. Þetta sagði nýi utanríkisráðherrann, Jonas Gahr Støre úr Verkamannaflokknum, í viðtali við fréttastofuna AFP í gær. „Aðild að Evrópusambandinu er ekki á dagskrá næstu fjögur árin," sagði Störe, sem tók við embætti á mánudaginn. „Það er ljóst að ríkisstjórnin mun ekki sækja um aðild." Rétt eins og síðasta stjórn, sem var samsteypustjórn hægri- og miðjuflokka, eru flokkarnir sem standa að nýju stjórninni mjög klofnir í afstöðu sinni til ESB-aðildar. Í Verkamannaflokknum er skýr meirihluti fyrir aðildarumsókn, en andstaða við hana er rótgróin í samstarfsflokkunum, Sósíalíska vinstriflokknum og Miðflokknum. Støre hefur hingað til verið talinn til Evrópusinna í norskum stjórnmálum. Vegna þess hve afgerandi yfirlýsingar hans voru í viðtalinu við AFP virtist hann vera að skrúfa fyrir þá möguleika sem forystumenn Verkamannaflokksins, fyrst og fremst formaðurinn og nýi forsætisráðherrann Jens Stoltenberg sjálfur, höfðu opnað fyrir. Í kosningabaráttunni, þar sem Evrópumálin lágu annars almennt í þagnargildi, sagði -Stolt-enberg- að ríkisstjórn undir sinni forystu myndi sækja um aðild ef stöðugur meirihluti mældist fyrir því meðal kjósenda í landinu. En svo virðist sem það hafi verið hluti af málefnasamningi stjórnarflokkanna að slá líka þennan möguleika af. Nýlegar skoðanakannanir benda til að meirihluti Norðmanna hafi snúist gegn ESB-inngöngu í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslanna um stjórnarskrársáttmála ESB í Frakklandi og Hollandi og deilna vegna aðildarviðræðna við Tyrki. Síðustu misserin þar á undan hafði fylgið við ESB sveiflast upp á við í kjölfar endurkjörs George W. Bush Bandaríkjaforseta og Íraksstríðsins. Støre segir stjórnina ætla að byggja Evróputengsl Noregs áfram á EES-samningnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira