Erlent

Laug til um árásina

Anne-Lise Jønch Pedersen, frambjóðandi danska Framfaraflokksins í héraðskosningum á Sjálandi, er í vondum málum eftir að upp komst að hún laug því að hópur innflytjenda hefði ráðist á sig. Á mánudaginn kom Pedersen fram í sjónvarpi, bólgin og blá og með brotin gleraugu á nefinu, og sagði að hópur unglinga af erlendum uppruna hefði hrint sér í götuna þar sem hún dreifði bækl-ingum á torgi í bænum Nakskov á Lálandi. Hún sagði árásina augljóslega vera af pólitískum rótum, en Framfaraflokkurinn hefur gagnrýnt mjög fjölgun innflytjenda í Danmörku. Dagblaðið Jyllands-Posten greinir hins vegar frá því að lögregla telji að Pedersen hafi logið til um árásina. „Öll sagan er uppspuni. Við höfum ekki fundið neinar vísbendingar sem renna stoðum undir hana," sagði Søren Ravn-Nielsen, lögregluforingi í samtali við blaðið. Hið sama er að segja um skrautlegar frásagnir af áverkum Pedersen. „Enginn hefur skoðað þessi meiðsli, hún hefur ekki leitað meðferðar neins staðar. Því hefur rannsókninni verið hætt." Hann bætti reiður við að skammarlegt væri að eyða skattfé í rannsókn máls sem byggt væri á lygum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×