Vindurinn úr Wilmu 20. október 2005 00:01
Nokkuð hefur dregið úr vindhraða fellibylsins Wilmu. Engu að síður hafa þúsundir yfirgefið heimili sín í Flórída og í ríkjum Mið-Ameríku. Loftþrýstingurinn í Wilmu mældist svo lágur í fyrradag, 882 millibör, að veðurfræðingar útnefndu storminn þann öflugasta sem myndast hefði á Atlantshafi. Í gær var hann hins vegar færður niður um eina gráðu og er nú 4. stigs fellibylur með 62 metra meðalhraða á sekúndu. Íbúar Mexíkó fengu þrátt fyrir það að kenna á hvassviðri og úrkomu þegar jaðrar Wilmu teygðu sig inn á meginland Mið-Ameríku í gær. Fregnir bárust af tjóni í Hondúras og þar er fjögurra fiskimanna saknað. Í mexíkóska bænum Cancun flykktust þúsundir ferðamanna af hótelum sínum til flugvallarins og reyndu að komast burt áður en óveðrið hæfist fyrir alvöru. Búist var við að miðja stormsins gengi yfir Yucatan-skaga í nótt. Á Kúbu hafa 96.000 manns verið fluttir af heimilum sínum og á Haítí hafa híbýli yfir tvö þúsund fjölskyldna farið undir vatn. Enda þótt vind hafi lægt lítillega bjuggu íbúar Flórídaskagans sig undir það versta en reiknað er með að þangað komi Wilma á sunnudaginn. Ferðamenn hafa að mestu haft sig á brott og í dag eiga íbúar á hættusvæðunum að vera búnir að koma sér í öruggt skjól.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira