Gripið til víðtækra ráðstafana 20. október 2005 00:01
Í dag lést tæplega fimmtugur Taílendingur úr fuglaflensu. Í Indónesíu virðist heil fjölskylda hafa smitast sem vekur ótta um stökkbreytingu vírussins. Bretar ætla að kaupa bóluefni fyrir hvern einasta íbúa Bretlandseyja. Austurríkismenn og Þjóðverjar hafa bannað lausagöngu alifugla. Fuglaflensan hefur nú borist frá Asíu til Síberíu og Kasakstan, til Tyrklands, Rúmeníu og hugsanlega víðar í Evrópu. Víst er talið að farfuglar sem koma hingað til lands næsta vor beri með sér veiruna. Þar sem flensan hefur greinst hefur verið gripið til víðtækra aðgerða: fuglar eru drepnir í tugþúsundavís og farartæki sem fara um sýkt svæði eru sótthreinsuð. En hver er hættan hér á landi? Fuglaflensan er bráðsmitandi í farfuglum en fæstir þeirra verða þó veikir. Alífuglar, einkum kjúklingar, kalkúnar og endur drepast hins vegar oft og tíðum. Næsta vor verða að öllum líkindum einhverjar endur hérna á tjörninni með H5N1-stofn fuglaflensunnar, en það er stofninn sem hefur reynst mönnum banvænn. Þrátt fyrir það segja sérfræðingar óhætt að gefa öndunum áfram, því eins og stendur er fuglaflensan einmitt það sem nafnið gefur til kynna: fuglaflensa. Skoðum þetta nánar: Eins og er, er einungis talið að mannfólk smitist af fuglaflensu sé það í miklu návígi við sýkta fugla. Starfsfólk hænsnabúa og fuglabændur eru meðal þeirra sem smitast hafa í Asíu. Þó að sextíu hafi látist úr flensunni, sem er um helmingur þeirra sem hafa smitast, er flensan þó hvorki faraldur né hefur hún stökkbreyst þannig að bráð hætta sé á faraldri á næstu vikum eða mánuðum. Flensan hefur verið á kreiki síðan 2003 og hefur ekki stökkbreyst enn. Fuglaflensa hefur raunar áður borist í fólk, til að mynda 1997 og 2003 í Hong Kong. Það leiddi ekki til frekara smits. Sem stendur er hættan fyrir venjulegt fólk því sáralítil. Ekki hefur verið varað við ferðalögum um svæði þar sem sýktir fuglar hafa fundist, einungis er varað við miklu návígi við fiðurfé, að fólk handleiki fugla. Á meðan að veiran stökkbreytist ekki er hættan á heimsfaraldri með tilheyrandi manntjóni engin, og því engin ástæða til að hræðast fuglaflensu... í bili.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira