Erlent

Grunuðum hryðjuverkmönnum sleppt

Fjórir menn frá Norður-Afríku sem bíða þess að vera vísað frá Bretlandi vegna gruns um aðild að hryðjuverkum verða leystir úr haldi lögreglu gegn tryggingu. Sérstakur dómstóll sem fjallaði um mál mannanna ákvað þetta í dag en neitaði fimm um lausn og máli eins var frestað. Breska innanríkisráðuneytið kvartaði undan því að leysa ætti mennina úr haldi og sagði enn stafa hættu af þeim. Þeir hafa ekki verið ákærðir fyrir glæp en stjórnvöld vilja flytja þá úr landi á grundvelli laga sem heimila að grunaðir hryðjuverkamenn séu reknir úr landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×