Erlent

Palestínumenn styðja Saddam

Tugir Palestínumanna tóku þátt í mótmælagöngu til stuðnings Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra Íraks, í Gaza-borg í gærdag. Mótmælendurnir segja Hussein fórnarlamb Bandaríkjamanna og að hann sé einn fárra valdamanna í heiminum sem hefur staðið þétt við bakið á Palestínu í stríðinu gegn Ísrael. Þá segja þeir til skammar hvernig Bandaríkjamenn hafa tekið afstöðu með Ísrael og að ef Saddam Hussein eigi að vera fyrir rétti, eigi George Bush að vera það einnig. En Hussein er ákærður fyrir að hafa fyrirskipað aftöku á 150 sjítamúslimum árið 1982 og verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér dauðadóm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×