Erlent

Borða allt nema grænmetið

Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu. 64 prósent Bandaríkjamanna teljast nú of þung eða of feit og samkvæmt einni rannsókn verða níu af hverjum tíu Bandaríkjamönnum of þungir á einhverjum tímapunkti ævinnar. Sérfræðingar í offitufræðum sem funda nú í Vancouver í Kanada segja ástæðuna þá að fólk hætti helst ekki að borða fyrr en það er búið að tæma diskinn fyrir framan sig. Það eina sem fólk er líklegt til að skilja eftir er grænmetið samkvæmt einni könnun. Önnur rannsókn leiddi í ljós að börnum allt niður í tveggja ára aldur er hætt við að borða yfir sig ef of mikill matur er á boðstólum. Í sömu könnun kom þó fram að börn sem hættir við að borða of mikið borði minna en ella ef þau fá að skammta sér matinn sjálf. Vísindamennirnir segja að besta leiðin til að vinna gegn offitu sé að minnka skammtana, hvort sem er á veitingastöðum eða í tilbúnum réttum. Þetta geti þó reynst erfitt þar sem fólk sé gjarnt að líta svo á að geti það fengið stærri matarskammt fyrir litlu meira fé sé það að gera betri kaup en hugsi ekki út í að það sé ávísun á að viðkomandi verði of þungur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×