Erlent

Telja blaðamanni hafa verið rænt

Óttast er að blaðamanni á vegum breska dagblaðsins Guardian hafi verið rænt í Írak eftir að ekkert hefur spurst til hans síðari hluta dags. Írski blaðamaðurinn Rory Carroll mun hafa verið í viðtali í bresku útvarpi í morgun vegna réttarhaldanna yfir Saddam Hussein en samkvæmt yfirlýsingu frá Guardian munu vopnaðir menn hafa rænt honum í höfuðborginni Bagdad. Carrol hefur dvalist í Írak í um það bil ár við fréttaöflun en tíma hans þar var við það að ljúka. Í dag er ár liðið frá því að breska hjálparstarfsmanninum Margaret Hassan var rænt, en mannræningjarnir líflétu hana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×