Erlent

Flensa í evrópska hluta Rússlands

Óttast er að fuglaflensa hafi borist til evrópska hluta Rússlands. Yfirvöld í héraðinu Tula hafa fyrirskipað sóttkví. Bráðabirgðaniðurstöður prófana benda til þess að H5N1-stofninn hafi fundist í nokkrum fuglum í Tula. Héraðið er rúmum 200 kílómetrum suður af Moskvu. Yfirvöld þar hafa fyrirskipað allsherjarsóttkví og að þrjú þúsund fuglum verði fargað. Fuglaflensa hafði þegar komið upp í Síberíu og við Úralfjöll í austurhluta Rússlands. Síðan í júli hefur meira en sex hundruð þúsund fuglum verið fargað í landinu en yfirvöld í Rússlandi höfðu gefið það út að tekist hefði að hemja útbreiðslu flensunnar. Verið er að rannsaka hvort tilvikin sem virðast komin upp í evrópska hluta landsins hafi borist frá Síberíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×