Réttarhöldunum frestað 23. október 2005 17:50
Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófust í morgun en var frestað fyrir stundu að beiðni lögfræðinga hans til 28. nóvember. Hussein og sjö samstarfsmönnum hans er gefið að sök að hafa fyrirskipað morð á 150 sjítamúslimum eftir að reynt var að ráða Hussein af dögum árið 1982. Lögmenn Saddams hafa margoft sagt réttarhöldin ólögmæt þar sem innrás Bandaríkjamanna inn í landið hafi verið ólögleg og þar af leiðandi séu réttarhöldin ólögleg. Búist var við að réttarhöldunum yrði frestað en verjendur forsetans fyrrverandi fóru fram á þriggja mánaða frest. Saddam þurfti einungis að staðfesta hver hann væri í dómsal í dag en hann bætti þó við: „Hver eruð þið og hvað viljið þið?" Ákærur voru síðan lesnar upp og gengið frá ýmsum lagatæknilegum atriðum. Öryggisgæsla við réttarhöldin verður gríðarleg. Réttarsalurinn var sérstaklega byggður vegna þeirra en þau verða hins vegar lokuð almenningi og aðeins örfáir fjölmiðlamenn fá aðgang. Verði hinns 68 ára gamli Hussein og samstarfsmenn hans fundnir sekir, geta þeir átt yfir höfði sér dauðadóm. Þeir geta þó áfrýjað dómnum til sérstaks dómstigs, sem sérstaklega var sett á laggirnar til að fjalla um mál forsetans fyrrverandi og valdatíma hans. Mannréttindasamtök víða um heim hafa lýst yfir áhyggjum af því að Saddam fái ekki sömu meðhöndlun og aðrir sakborningar. Amnesty International ætla að senda þrjá menn til Bagdad sem verða viðstaddir réttarhöldin.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira