Erlent

Mótmæla lausn fanganna

Hundruð komu saman við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í borginni Trípoli í Líbíu í gær til að mótmæla ákvörðun Bandaríkjaforseta að láta lausa fimm búlgarska hjúkrunarfræðinga sem í maí árið 2004 voru dæmdir til dauða fyrir að sýkja yfir 400 börn af HIV-veirunni í tilraunaskyni til að finna lækningu við alnæmi. Mótmælendurnir sögðu Bush styðja glæpamenn og hunsa rétt saklausra barna. Bush sagði hins vegar á blaðamannafundi í Hvíta húsinu að Bandaríkjastjórn teldi fólkið hafa gert mistök og ætti því ekki að vera refsað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×