Erlent

Nýi Danaprinsinn kominn heim

María Elísabet krónprinsessa og Friðrik krónprins Danmerkur sýndu nýfæddan son sinn í fyrsta sinn opinberlega í gær er þau komu heim af fæðingardeildinni. Þau brostu sínu breiðasta, hún með prinsinn unga á arminum, þegar þau veifuðu til fjölmiðlafólks sem beið þeirra við innganginn að Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Ljósmyndarar höfðu verið beðnir að sýna viðkvæmum augum hins þriggja daga gamla prins þá tillitssemi að nota ekki flass. Danska ríkissjónvarpið sendi út beint frá viðburðinum. Sá litli virtist reyndar láta sér fátt um fjölmiðlafárið finnast og svaf sínu værasta. Hjónin vildu ekkert gefa upp um hvað prinsinn á að heita. "Við notum hin ýmsu gælunöfn," sagði María við spurningu fréttamanna. Miklar líkur þykja hníga að því að Kristjánsnafnið verið fyrir valinu enda er 446 ára hefð fyrir því að konungar Danmerkur heiti Kristján og Friðrik á víxl



Fleiri fréttir

Sjá meira


×