Erlent

Hjálparstarf gengur enn erfiðlega

Fimmtíu og fjögur þúsund manns eru nú talin hafa farist í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmírhérað fyrir tíu dögum. Neyðaraðstoð hefur enn ekki borist til hálfrar milljónar manna. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir hjálparstarf í Kasmír erfiðara en eftir flóðbylgjuna miklu í Indlandshafi í fyrra, og telur ekki nógu mörg vetrartjöld til í heiminum til að veita öllum þeim sem eru heimilislausir eftir skjálftann, tímabundið húsaskjól í vetur. Meginástæða þess hversu hægt gengur að ná til nauðstaddra er ekki endilega viljaleysi eða seinagangur, heldur er einfaldlega afar erfitt að komast til hundruða fjallaþorpa þar sem tugþúsundir slasaðra hafa enn ekki fengið læknisaðstoð. Slæmt veður hamlaði því að þyrlur gætu flogið í nokkra daga og voru múlasnar jafnvel notaðir til þess að ferja hjálpargögn til afskekktra staða. Nú eru þyrlurnar farnar að fljúga á ný, en þótt matur og læknisaðstoð berist loksins, þá sefur fólk enn hundruða þúsunda tali undir berum himni í næturfrostinu. Þrjár milljónir manna eru taldar heimilislausar eftir skjálftann, en um fimmtán þúsund þorp eru á svæðinu, ofaní djúpum dölum og hátt uppi í fjöllum, mörg án nokkurs vegasambands vegna skriðufalla eftir skjálftann. Vetur er að ganga í garð og yfirvöld hafa varað við því að ef ekki takist að koma fólki í skjól í allra nánustu framtíð, þá eigi óbeinum fórnarlömbum skjálftans eftir að fjölga mjög.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×