Erlent

Bankar í höndum vinstrimanna

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, skammaði marga helstu bankastjóra landsins í dag fyrir að taka þátt í prófkjörum vinstriflokka á Ítalíu um síðustu helgi. Stjórnendur fjögurra af helstu bönkum landsins greiddu atkvæði í prófkjöri þar sem Romano Prodi, fyrrum forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bar sigur úr býtum. Berlusconi sagði þetta til marks um að bankakerfið væri sér andsnúið. Hann sagði ljóst að vinstrimiðjuflokkarnir á Ítalíu hefðu öll ráð helstu banka landsins í höndum sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×