Erlent

Stöðvar ekki fyrr en í Rússlandi

Skipstjóri rússneska togarans sem er á flótta undan norskum varðskipum með tvo norska strandgæslumenn innanborðs segist ekki ætla að nema staðar fyrr en hann er kominn í rússneska landhelgi. Í fréttum norska ríkisútvarpsins sagðist hann ætla að mæta rússnesku strandgæsluskipi með þarlenda eftirlitsmenn um borð. Yfirmenn norsku strandgæslunnar segjast enn krefjast þess að rússneski togarinn verði færður til hafnar í Noregi eins og til stóð þegar honum var siglt á brott með strandgæslumennina tvo innanborðs, þeir segja ekki nóg að Norðmönnunum verði sleppt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×