Erlent

Kastaði köku í nýja ráðherrann

Kristin Halvorsen fékk óblíðar móttökur þegar hún mætti í fjármálaráðuneytið í fyrsta skipti eftir að hafa tekið við embætti fjármálaráðherra í norsku ríkisstjórninni, að því er vefútgáfa Verdens Gang greinir frá. Þegar Halvorsen var að ganga inn í ráðuneytið kallaði rúmlega tvítugur maður til hennar að hann væri með köku fyrir hana. Halvorsen leit við og sá fljótt að ekki væri allt með felldu. Henni tókst hins vegar ekki að forða sér í tíma því ungi maðurinn kastaði kökunni í hnakkann á henni þar sem hún var við það að sleppa inn í ráðuneytið. Lögregla handtók unga manninn og færði til yfirheyrslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×