Erlent

Fáir ferðamenn í New Orleans

Illa gengur að fá ferðamenn til New Orleans þrátt fyrir öfluga markaðsherferð heimamanna til að fá fólk til borgarinnar. Bourbon stræti, sem er hvað þekktust fyrir líflega tónlist og góða veitingastaði, hefur smám saman verið að taka við sér og segja yfirvöld að nú sé rétti tíminn til að heimsækja New Orleans, aldrei hafi verið tekið betur á móti ferðamönnum. Illa hefur þó gengið að manna í stöður á veitingastöðum og hótelum þar sem margir hafa einfaldlega ekki viljað snúa aftur. Hefur því verið brugðið á það ráð að bera fram rétti á pappadiskum, því enginn fæst í uppvaskið. Veitingamenn eru þó bjartsýnir um að breyting verði á, á næstu mánuðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×