Erlent

Bretar bregðast við fuglaflensu

Landlæknir í Bretlandi segir ekki ólíklegt að 750 þúsund manns smitist af fuglaflensu í Bretlandi á næstu tveimur árum. Ríkisstjórn Bretlands býr sig nú undir aðgerðir til að vinna gegn mögulegri útbreiðslu veirunnar en búist er við að loka þurfi skólum, takmarka þurfi umferð um samgöngutæki og aflýsa þurfi flugi til landa þar sem stökkbreytt afbrigði veirunnar hafa greinst. Fuglaflensutilfelli hefur einnig greinst í Grikklandi og segir landlæknir að allt að 50 þúsund manns geti látist af völdum hennar á næstu árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×