Erlent

Borgarar falla í Írak

Sjötíu manns liggja í valnum eftir að bandarískar hersveitir réðust gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta Íraks. Íbúar svæðisins segja flesta hina látnu vera saklausa borgara. Loftárásirnar áttu sér stað í fyrrdag nærri borginni Ramadi. Í annarri skutu herþotur á hóp fólks sem safnast hafði saman við bílflak sem uppreisnarmenn höfðu sprengt upp og drepið þannig fimm bandaríska hermenn. Tuttugu og fimm létust hins vegar í loftárásinni, allt hryðjuverkamenn að sögn Bandaríkjamanna. Heimamenn segja hina látnu hins vegar óbreytta borgara. Í hinni árásinni biðu rúmlega fjörutíu bana. Yfirkjörstjórn Íraks rannsakar nú hugsanlegt svindl í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn þar sem óvenju margir greiddu atkvæði í sumum héruðum landsins. Úrslit liggja ekki fyrir en talið er að stjórnarskrárdrögin hafi verið samþykkt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×