Erlent

Prodi vann yfirburðasigur

Romano Prodi, fyrrverandi forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vann yfirburðasigur í leiðtogaprófkjöri miðju- og vinstri manna á Ítalíu í gær. Fjórar milljónir manna greiddu atkvæði í prófkjörinu, en til þess að mega taka þátt þurfti að greiða eina evru og skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við bandalag miðju- og vinstriflokkanna sem mun berjast við bandalag miðju- og hægri flokka Berlusconis í komandi kosningum. Sjö voru í framboði en Prodi hlaut tæp sjötíu og fimm prósent atkvæða. Næstu þingkosningar verða líklega um mitt næsta ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×