Erlent

Leggja til algjört reykingabann

Heilbrigðisráðherra Norður-Írlands, Shaun Woodward tilkynnti í dag að hún muni leggja til algert reykingabann á opinberum stöðum, þar með öllum tegundum öldurhúsa og veitingastaða. Könnun leiddi í ljós að mikill meirihluti Norður-Íra styður bannið, en bareigendur eru helstu andstæðingarnir. Þeir munu þó hafa nokkurn aðlögunartíma, því ef allt gengur eftir munu lögin ekki taka gildi fyrr en vorið 2007.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×