Erlent

Merkel kynnir ráðherralið sitt

Forystumenn stóru flokkanna tveggja í Þýskalandi, Kristilegra demókrata (CDU/CSU) og Jafnaðarmanna (SPD) hittust í gær til að hefja formlegar viðræður um gerð málefnasamnings samsteypustjórnar flokkanna. Og Angela Merkel, leiðtogi kristilegra, kynnti hverjir úr röðum hennar flokksmanna setjast með henni í þessa væntanlegu ríkisstjórn. Ráðherraval Merkel er blanda af nýjum andlitum og reynsluboltum sem sátu með Helmut Kohl í ríkisstjórn á sínum tíma. Merkel tilnefnir sex fagráðherra auk yfirmanns kanslaraskrifstofunnar, en sú staða þykir ígildi ráðherrastóls. Að honum og Merkel sjálfri meðtöldum er þannig fullt jafnræði milli flokkanna í stjórninni. Jafnaðarmenn kynntu sinn ráðherralista fyrir helgi, en gegn því að fallast á að Merkel yrði kanslari fá þeir nokkur lykilráðuneyti, svo sem bæði fjár- og utanríkismála. Í ráðherraliði Merkel verða tvö þekkt andlit frá Kohl-tímanum. Wolfgang Schäuble verður innanríkisráðherra á ný og Horst Seehofer, sem fór með heilbrigðismál í stjórn Kohls, verður landbúnaðarráðherra. Edmund Stoiber, formaður CSU, verður efnahags- og tæknimálaráðherra. Varnarmálaráðherra verður Franz Josef Jung, náinn samherji eins kappsamasta innanflokkskeppinautar Merkel, Rolands Koch sem er forsætisráðherra Hessen. Tvær konur fær Merkel til liðs við sig. Þær eru Annette Schavan, fyrrverandi menntamálaráðherra Baden-Württemberg, og Ursula von der Leyen verður fjölskyldumálaráðherra. Í stól kanslaraembættisstjóra fær Merkel Thomas de Maiziere, innanríkisráðherra Saxlands og bróðurson Lothars de Maiziere, fyrsta lýðræðislega kjörna ríkisstjórnarleiðtoga Austur-Þýskalands sem Merkel þjónaði sem talsmaður sameiningarárið 1990.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×