Erlent

Greiða 43 milljarða í bætur

Svissneska lyfjafyrirtækið Serono hefur samþykkt að greiða andvirði 43 milljarða króna í miskabætur fyrir að hafa beitt ólöglegum aðferðum við að koma alnæmislyfinu Serostim á markað. Lögmenn fyrirtækisins komust að samkomulagi við bandaríska dómsmálaráðuneytið um greiðslurnar en hvort tveggja ríki og einstaklingar hafa höfðað mál á hendur fyrirtækinu að undanförnu vegna ólöglegra starfshátta fyrirtækisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×