Erlent

Vilja að prinsinn fái feðraorlof

Meirihluti Dana segist hlynntur því að Friðrik krónprins taki sér fæðingarorlof vegna fæðingar frumburðarins. Ríflega 51 prósent af þeim 1600 sem spurðir voru sögðust fylgjandi því að prinsinn færi í pabbafrí og aðallega voru það konur og Kaupmannahafnarbúar sem sögðust þessu hlynnt. Um fjórðungur aðspurðra sagðist alfarið á móti því að Friðrik fengi nokkuð frí.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×