Erlent

Hundruð óþekktra líka í líkhúsunum

Hundruð óþekktra líka eru enn í líkhúsum í New Orleans og gengur hægt að bera kennsl á þau. Fjölmargir borgarbúar leita ástvina sinna og eru reiðir sökum þess hversu hægt gengur að fá upplýsingar um örlög þeirra. Réttarlæknar reyna nú eftir fremsta megni að bera kennsl á lík sem fundust í New Orleans eftir að vatnið í borginni tók að sjatna. Nokkur hundruð lík eru í líkhúsum og bíða þar þess að hægt sé að rannsaka þau. Þeirra bíður ekki auðvelt verk þar sem líkin eru illa leikin eftir legu í vatni í miklum hita. Einn þeirra,  Dr. Louis Cataldie, segist jafnvel búast við að vinnan taki a.m.k. hálft ár í viðbót.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×