Erlent

Fimm bandarískir hermenn falla

Fimm bandarískir hermenn létust er sprengja sprakk á vegi í Írak á laugardag, þegar Írakar kusu um stjórnarskrá sína. Bandaríski herinn sagði frá þessu í gær en áður hafði herinn sagt að kosningarnar hafi farið friðsamlega fram. Sprengjan sprakk á landssvæði þar sem margir súnníar búa, en þeir höfðu sagst ætla að kollvarpa kosningunum. Þó er talið að fáir Írakar hafi kosið á þessu svæði. Bandaríski herinn hafði fáar aðrar upplýsingar um sprenginguna. Að minnsta kosti 1.975 Bandaríkjamenn hafa fallið í átökunum í Írak síðan 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×