Erlent

Minnkandi þorskstofn

Þorskstofninn í Barentshafi hefur minnkað verulega, segja norskir og rússneskir fiskifræðingar sem hafa nýlokið stofnstærðarmælingum þar. Þó vilja fiskifræðingarnir ekki álykta enn að stofninn sé að hrynja, og segja að leita þurfi fleiri upplýsinga áður en hægt sé að draga frekari ályktanir. Þorskstofninn mældist um tvær milljónir tonna í vor, en nú mælist hann eingöngu ein milljón og þrjúhundruð þúsund tonn, kemur fram í norska blaðinu Fiskeribladet.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×