Erlent

Barn finnst á lífi

Ungt stúlkubarn fannst á lífi í gær í rústum byggingar nærri Balakot-borg, sem hrundi í jarðskjálftunum í Kasmír um síðustu helgi. Stúlkan hafði verið grafin í rústunum í átta daga þegar systkini hennar fundu hana. Talsmaður pakistanska hersins segir foreldra barnanna hafa látist í hamförunum. Líðan telpunnar er sögð góð miðað við aðstæður, en hún þjáist af mænusótt. Skjálftinn er talinn hafa kostað um 40.000 manns lífið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×