Erlent

Hvalur á stafni

Áhöfn ítölsku ferjunnar Moby Aki brá heldur betur í brún þegar upp komst um orsakir stýris­erfiðleika skipsins á laugardag. Fimmtán metra langur hvalsskrokkur, 25 tonn á þyngd, lá yfir stefni ferjunnar og hafði hann valdið því að erfiðlega gekk að stýra ferjunni inn í höfnina í Livorno á Norður-Ítalíu. Ferjan var á leið frá Olbía á Sardiníu þegar hún rakst á hvalinn. Sérfræðingar segja hann líklega hafa verið dauðan áður en áreksturinn varð, en enginn um borð varð var við hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×