Erlent

Syrgjendur vilja fá líkin

Hundruð svartklæddra syrgjenda söfnuðust saman í gær fyrir utan skrifstofur saksóknara í borginni Naltjik í rússneska hluta Kákasus og kröfðust þess að lík ættingja þeirra yrðu látin af hendi, svo hægt væri að grafa þau. Fólkið var drepið í árás á borgina sem talið er að íslamskir öfga­menn hafi staðið að. Að minnsta kosti 139 manns létust í átökunum. Rússnesk lög kveða á um að lík hryðjuverkamanna séu ekki færð aðstandendum til greftrunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×