Erlent

Braut rúðu í farþegaþotu á flugi

Karlmaður var handtekinn af lögreglunni á Flórída á dögunum eftir að hafa brotið rúðu í farþegaþotu sem var á leið frá Las Vegas til borgarinnar Tampa í Flórídaríki. Aðeins innri rúðan brotnaði og því varð engum meint af athæfi mannsins. Að sögn lögregluyfirvalda reiddi maðurinn til höggs á sama andartaki og hann vaknaði af værum blundi. Lögmaður mannsins segist ekki vita nákvæmlega hvers vegna hann tók upp á þessu en útilokar ekki að misnotkun vímuefna hafi eitthvað um það að segja. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir skemmdarverk á flugvél í flugi og gæti átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×