Erlent

Hefur ekki áhuga á forsetaembætti

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hún hefði engan áhuga á því að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna í næstu forsetakosningunum, en þegar hafa verið opnaðar að minnsta kosti tvær vefsíður þar sem Rice er hvött til að gefa kost á sér sem forsetaefni repúblikana í kosningunum 2008. Rice var innt eftir því í tvígang í bandarísku sjónvarpi í dag hvort hún hefði áhuga á embættinu en hún þvertók fyrir það en sagðist búast við að repúblikana fyndu góðan frambjóðanda í baráttuna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×