Erlent

Bretar neita aðild að árás í Íran

Bretar neituðu í dag ásökunum íranskra yfirvalda um aðild að sprengjutilræðum í suðurvesturhluta Írans í gær sem kostuðu fimm manns lífið. Tvær heimatilbúnar sprengjur sprungu með nokkurra mínútna millibili í miðbæ borgarinnar Ahvaz í Khuzestan-héraði og auk þeirra fimm sem létust særðust ríflega 80 manns. Samskipti Írana og Breta hafa stirnað nokkuð að undanförnu en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íranar saka Breta um að aðstoða arabíska aðskilnaðarsinna í Íran við árásir í hinum olíuríka suðvesturhluta landsins, en þar hafa árásir og mótmæli verið tíð á þessu ári. Á móti hafa Bretar gagnrýnt Írana fyrir kjarnorkuáætlun sína og auk þess sakað þá um að aðstoða uppreisnarmenn í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×