Erlent

Fangauppreisn nærri Búenos Aíres

Að minnsta kosti sautján eru látnir í fangauppreisn í fangelsi suður af Búenos Aíres, höfuðborg Argentínu, sem enn stendur yfir. Eftir því sem argentínskir fjölmiðlar greina frá kom til átaka í kjölfar þess að beiðni fanga um lengri heimsóknartíma í dag var hafnað í gærkvöld. Um 200 fangar eru sagðir hafa tekið þátt í uppreisninni og logar eldur í hluta fangelsisins. Ekki er ljóst hvort hinir látnu eru í hópi fanga eða fangavarða eða hvort tveggja en fangelsismálayfirvöld verjast allra fregna af uppreisninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×