Erlent

Fimm hermenn drepnir í Írak

Fimm bandarískir hermenn létust þegar sprengja sprakk nærri farartæki þeirra í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í gær. Frá þessu greindi Bandaríkjaher í dag. Uppreisnarmenn létu lítið að sér kveða á flestum stöðum í landinu í gær þegar Írakar greiddu atkvæði um drög að nýrri stjórnarskrá fyrir landið en þó kom til átaka á milli uppreisnarmanna úr röðum súnníta og bandarískra og írakskra sveita í Ramadi í gær og hafði það nokkur áhrif á kjörsókn þar. Að minnsta kosti 1970 Bandaríkjamenn hafa látist í Írak frá því að ráðist var inn í landið í mars 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×