Erlent

Börnin í Kasmír í stórhættu

Börnin sem lifðu af jarðskjálftann í Kasmír eru í stórhættu að mati sérfræðinga hjálparstofnana. Þeir segja vosbúð, vannæringu, kulda og hugsanlegar farsóttir stefna lífi barnanna í hættu. Ástandið á hamfarasvæðunum er ekki gott. Þó að hjálpin berist til landsins er erfitt að koma henni á leiðarenda að sögn Robs Holdens, talsmanns Sameinuðu þjóðanna á svæðinu. Mikið hefur rignt og sums staðar hefur flætt sem truflað hefur flug þyrlna S.þ. Að sögn Holdens er hættan mikil því fólk hafist við úti undir berum himni. Á næturnar er hitastigið rétt yfir frostmarki og fólk brennir allt lauslegt til að halda á sér hita. Börnin eru þau sem verst fara út úr þessu og segja talsmenn hjálparsamtaka að fregnir hafi borist af börnum sem lifðu af skjálftann en ekki afleiðingarnar. Mikilvægt sé að koma þeim til hjálpar sem er þó erfitt þegar veðurguðirnir láta illa. Stór hluti þeirra sextíu þúsund sem slösuðust eru börn. Sjúkrahúsin eru illa búin og starfsfólk þeirra að þrotum komið. Dr. Syed Fazel Hadi, yfirmaður á einu þeirra, segir að á sl. sólarhring hafi 177 einstaklingar gengist undir stórar aðgerðir. Fjöldi þeirra sé því kominn upp í 700-800 frá því skjálftinn reið yfir. Yfirvöld hækkuðu í dag mat sitt á fjölda þeirra sem fórust. Opinber fjöldi þeirra er nú þrjátíu og átta þúsund og talið víst að talan muni hækka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×