Erlent

Fjölbýlishús hrundi

Slökkviliðsmenn leituðu eftir eftirlifandi íbúum í húsarústunum í gær, en óvíst var hversu margir voru í húsinu þegar það hrundi. Flestir íbúar hússins voru innflytjendur frá Norður-Afríku og segja nágrannar að hópur múslima hafi komið saman í húsinu undanfarin kvöld til að borða einu máltíð dagsins, sem er siður á meðan föstumánuðurinn ramadan stendur yfir. Tveir hinna særðu voru fluttir á sjúkrahús, en gert var að sárum hinna tveggja á staðnum. Hinir látnu voru allir karlmenn á aldrinum 20 til 55 ára. Verið er að rannsaka orsakir slyssins, en talið er að miklar rigningar í norðausturhluta Katalóníu undanfarið eigi þar stóran hlut að máli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×