Erlent

Lítið um árásir á kjördag í Írak

Kjörstöðum í Írak vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að stjórnarskrá landsins var lokað klukkan tvö að íslenskum tíma. Flest bendir til að kjörsókn hafi verið góð. Fimmtán milljónir Íraka voru á kjörskrá og var búist við að fleiri myndu neyta atkvæðisréttar síns nú en í þingkosningum sem fóru fram í lok janúar á þessu ári. Þar skiptir mestu að súnnítar ætluðu að kjósa um stjórnarskrárdrögin en þeir sniðgengu margir þingkosningarnar. Gríðarleg öryggisgæsla var í landinu vegna kosninganna þar sem uppreisnarmenn höfðu hótað að rústa þeim. Fréttir hafa borist af því að þrír írakskir hermenn hafi látist þegar vegsprengja sprakk skammt frá Bagdad í dag og þá hafa nokkrir óbreyttir borgarar særst í árásum víðs vegar um landið. Úrslita þjóðaratkvæðagreiðslunnar er ekki að vænta fyrr en eftir nokkra daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×