Erlent

Bandaríkjaher nær rakara í Írak

Bandaríkjaher greindi frá því í dag að tekist hefði að handsama mann sem grunaður er um að hafa verið rakari háttsettra al-Qaida liða í Írak og aðstoðað þá við að breyta útliti sínu þannig að þeir kæmust undan. Maðurinn, sem gengur undir því frumlega nafni Rakarinn, var handtekinn í síðasta mánuði ásamt öðrum manni sem talinn var náinn aðstoðarmaður Abus Azzams, næstæðsta manns al-Qaida í Írak, sem drepinn var 23. september síðastliðinn. Bandaríkjamenn segja Rakarann hafa litað og klippt bæði hár og skegg háttsettra al-Qaida liða og þannig hjálpað eftirlýstum mönnum að flýja arm laganna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×