Erlent

Kosningaþáttaka góð í Írak

Kosningaþátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá í Írak er sögð hafa verið nokkuð góð og einkum þykir það tíðindum sæta að súnnítar virðast hafa ákveðið að sniðganga ekki kosningarnar eins og þeir gerðu í stórum stíl í við þingkosningarnar í janúar. Gríðarleg öryggisgæsla er alls staðar vegna kosninganna og hefur öll umferð meðal annars verið bönnuð. Nokkrar handsprengju- og skotárásir hafa verið gerðar en engar fregnir hafa borist af mannfalli í þeim árásum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×