Erlent

Níðingsskap mótmælt

Félagar í dýraverndunarsamtökunum PETA komu saman í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í gær og mótmæltu meðferð Ástrala á sauðfé. Talsmaður PETA gagnrýnir Ástrala fyrir að stunda afskurð á skinnflikkjum sem safnast upp við afturenda lamba en ormar og flugur koma sér þar gjarnan fyrir. Aðferðin er bönnuð í Evrópu enda veldur hún dýrunum talsverðum sársauka. Til að leggja áherslu á orð sín klæddust sumir mótmælendanna einungis g-strengjum og máluðu ástralska fánann á rass sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×