Erlent

Hafa stöðvað alla mótspyrnu

Rússneskir hermenn hafa brotið á bak aftur alla mótspyrnu í borginni Nalstjik í Norður-Kákasus eftir að tsjetsjenskir uppreisnarmenn réðust í gær á lögreglu og opinberar byggingar. Að minnsta kosti 90 féllu í átökunum, flestir þeirra uppreisnarmenn, en rússneskar hersveitir fresluðu í morgun nokkra gísla úr höndum andspyrnumannanna. Sveitirnar fara nú um borgina og leita uppreisnarmanna en Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur fyrirskipað að skjóta þá sem sýni mótþróa við handtöku. Talið er að um tvö þúsund hermenn hafi lokað borginni en óljóst er hversu margir uppreisnarmennirnir eru. Tsjetsjenskir uppreisnarmenn berjast fyrir sjálfstæði Tsjetsjeníu frá Rússlandi en þeir hafa ítrekað látið sverfa til stáls í Norður-Kákasus á síðustu misserum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×