Erlent

Rove í fjórða sinn fyrir nefnd

Karl Rove, einn helsti ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, kom í dag í fjórða sinn fyrir rannsóknarnefnd sem rannsakar það hvernig nafn leyniþjónustumanns hjá CIA var lekið í fjölmiðla árið 2003. Flest bendir til að Rove hafi lekið nafni leyniþjónustukonunnar Valerie Plame og hefur eiginmaður Plame, Joseph Wilson, sakað stjórnvöld um að ljóstra upp nafni hennar til þess að refsa honum fyrir gagnrýni á málflutning stjórnarinnar í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Saksóknarar hafa sagt Rove að þeir geti ekki lofað honum að hann verði ekki ákærður fyrir að leka nafni Plame en það ræðst væntanlega á næstunni hvort svo verður þar sem rannsóknarnefndin lýkur fljótlega störfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×