Erlent

Samsung sektað fyrir verðsamráð

Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung hefur verið sektaður um 300 milljónir dollara eða sem nemur rúmum 18 milljörðum íslenskra króna en þeim er gert verðsamráð að sök. Þetta er önnur hæsta sekt sem greidd hefur verið af þessum toga en að baki henni liggur þriggja ára rannsókn. Samsung er stærsti framleiðandi minniskubba fyrir tölvur auk annarra rafeindatækja í heiminum. Velta fyrirtækisins í minniskubbum einum og sér í Bandaríkjunum nemur 7,7 milljörðum dollara. Málið var tekið fyrir hjá dómstólum í San Francisco í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×