Erlent

Ný njósnastofnun sett á fót í BNA

Bandaríkjastjórn hefur komið á fótt nýrri njósnastofnun sem samhæfa á allar njósnir í útlöndum. Stofnunin hefur verið nefnd National Clandestine Service, NCS, og heyrir undir CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna, en hún mun stjórna öllum njósnaaðgerðum, þar á meðal aðgerðum á vegum alríkislögreglunnar og varnarmálaráðuneytisins. Stofnun NCS er enn einn liðurinn í endurskipulagningu á njósnastarfsemi Bandaríkjanna, en hún var tekin var til gagngerrar endurskoðunar eftir árásirnar 11. september 2001.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×