Erlent

Segjast hafa hamið fuglaflensu

Tyrknesk yfirvöld segjast hafa náð að hemja útbreiðslu fuglaflensunnar en staðfest er að mannskætt afbrigði veirunnar hefur valdið fugladauða þar í landi. Landbúnaðarráðherra Tyrklands segir yfirvöld vera á varðbergi gagnvart því ef fuglaflensunnar verði vart í landinu en margir farfuglar sem fljúga á milli Afríku og Rússlands eiga leið um Tyrkland. Evrópusambandið hefur hvatt aðildarríkin til að birgja sig upp af bóluefni gegn fuglaflensu og hyggst framkvæmdastjórnin setja einn milljarð evra eða rúmlega 70 milljarða íslenskra króna í sjóð til að standa straum af kostnaði við lyf og bólusetningu ef mannskæður faraldur kemur upp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×