Erlent

85 látnir í Naltsjik í Rússlandi

Að minnsta kosti 85 manns létust í átökum uppreisnarmanna og her- og lögreglumanna í borginni Naltsjik í Norður-Kákasus í Rússlandi í gær. 61 hinna látnu voru tsjetsjenskir uppreisnarmenn en samtök þeirra lýstu yfir að þau stæðu á bak við árásirnar í borginni. Staða samtaka herskárra múslíma hefur styrkst mjög í Suður-Rússlandi síðustu misserin, þar sem átökin eiga sér stað. Verða lögreglumenn, hermenn og aðrir opinberir starfsmenn oft fyrir árásum vopnaðra herskárra hópa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×