Innlent

Rauði kross Íslands til Níger

Rauði kross Íslands ætlar að leggja þrjár milljónir í hjálparstarf vegna hungursneyðar sem nú ríkir í Afríkulandinu Níger og nálægum löndum. Karl Sæberg Júlíusson fer svo á næstu dögum til landsins sem sendifulltrúi Rauða kross Íslands og hefur umsjón með öryggismálum vegna hjálparstarfsins. Milljónir þjást nú af næringarskorti í landinu og sérstaklega er óttast um afdrif barna. Uppskerubrestur varð í landinu í fyrra og er ástandið að verða nokkuð alvarlegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×