88 látnir í sprengjuárás 13. október 2005 19:34
Að minnsta kosti 88 létust og á annað hundrað slösuðust í sprengjuárás á ferðamannastaðnum Sharm el-Sheik í Egyptalandi aðfararnótt laugardags. Óttast er að tala látinna muni hækka. Árásin er hin mannskæðasta í Egyptalandi til þessa. Sjö Íslendingar voru á staðnum en engan þeirra sakaði. Árásirnar virtust vel útfærðar og skipulagðar. Tvær bílsprengjur með þriggja kílómetra millibili sprungu samtímis klukkan korter yfir eitt aðfararnótt laugardags. Önnur sprakk við kaffihús á svæði sem kallast Gamli markaðurinn, þar sem mikið er um Egypta. Hin sprakk í anddyri lúxushótelsins Ghazala Gardens sem er í Naama flóanum, þar sem flest hótelin eru staðsett. Talið er að um sjálfsmorðsárásir hafi verið að ræða. Þriðja sprengjan, sem talið er að falin hafi verið í tösku, sprakk um svipað leiti og hinar á gönguleið við ströndina þar sem ferðamenn spóka sig gjarnan á þessum tíma sólarhringsins. Nokkrum klukkustundum eftir sprengingarnar lýstu tvennir öfgahópar tengdir al-Kaída yfir ábyrgð á árásinni en það hefur ekki fengist staðfest. Annar hópurinn, sem nefnir sig Abdullah Azzam hersveitirnar, al-Kaída í Sýrlandi og Egyptalandi, var einn af tveimur öfgahópum sem lýstu yfir ábyrgð á sprengingunum á ferðamannastöðunum Taba og Ras Shitan í Egyptalandi í október þar sem 34 létust. Hópurinn lýsti einnig yfir ábyrgð á sprengingum í Kaíró í apríl. Flestir hinna látnu voru Egyptar en einnig létust að minnsta kosti átta erlendir ferðamenn frá um sjö löndum og tugir eru slasaðir. Lögreglan færði tuttugu til yfirheyrslu, en flestir voru staddir nærri árásarstöðunum þegar sprengingarnar urðu.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira