Erlent

Krabbameinslyf gefur góðar vonir

Vonir lækna um að lyfið Herceptin vinni vel á brjóstakrabbameini á fyrstu stigum sjúkdómsins eru svo miklar að heilbrigðisráðherra Breta vill að veitingu leyfis til notkunar þess verði hraðað. Herceptin hefur verið notað um langt skeið til að meðhöndla konur sem haldnar eru tilteknu afbrigði brjóstakrabbameins á síðari stigum. Það hefur ekki verið notað til að meðhöndla sjúkdóminn á upphafsstigum en alþjóðlegar rannsóknir sýna að lyfið hefur mjög jákvæð áhrif þegar það er gefið konum með forstigseinkenni. Patricia Hewitt heilbrigðisráðherra Bretlands ákvað að bregðast við vegna gagnrýni um að konum, sem lyfið gæti gagnast vel, væri neitað um það. Til þess verður hins vegar að rannsaka betur hvort kostir lyfjameðferðarinnar vegi þyngra en gallarnir sem mögulegar aukaverkanir geta haft. Sigurðar Björnssonar, læknir og formaður Krabbameinsfélagsins, segir að Herceptin hafa verið notað hér á landi um nokkurt skeið. Í ljósi erlendu rannsóknanna er hins vegar farið að gefa konum með forstigseinkenni lyfið í nokkrum mæli. "Þetta eru það sláandi niðurstöður að erfitt er að neita konum um lyfið sem eru með þetta tiltekna merki á frumunum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×